Bílar

Íslendingar unnu kynningarmyndband fyrir Mercedes Benz S-Class

Finnur Thorlacius skrifar
Íslendingar voru í aðalhlutverki við gerð kynningarmyndbands um flaggskip Mercedes Benz, hins glæsilega S-Class bíls. Myndbandinu var leikstýrt af Samúel Bjarka Péturssyni og Gunnari Páli Ólafssyni hjá Truenorth og tónlistin sem hljómar undir er frá Bigga Hilmars og „Bix“ Sigurðssyni.

Verður það að teljast nokkur heiður fyrir samlanda okkar að fá svo stórt verkefni í hendurnar, þar sem um er að ræða stærsta og dýrast fólksbíl sem Mercedes Benz framleiðir. Nýjasta kynslóð S-Class bílsins var kynntur seint á síðast ári, en í þessari viku hjá Öskju hér á landi. Kynningarmyndbandið er ríflega 5 mínútna langt og stórglæsilegt, eins og bíllinn. 






×