Bílar

Renault græðir á Dacia

Finnur Thorlacius skrifar
Höfuðstöðvar Renault.
Höfuðstöðvar Renault. Automotive News
Hagnaður franska bílaframleiðandans Renault meira en tvöfaldaðist á síðast ári frá árinu á undan og er það ekki síst að þakka góðu gengi Dacia bílframleiðandans í Rúmeníu, sem er í eigu Renault.

Renault er sá eini af fimm stærstu bílaframleiðendunum í Evrópu sem seldi fleiri bíla í Evrópu í fyrra en árið áður. Sá árangur er líka Dacia að þakka, en vöxtur þar á milli ára í Evrópu nam 23%, en sala Renault bíla í álfunni minnkaði um 1,5%.

Renault ætlar að sækja mjög á fjarlægum mörkuðum vegna viðvarandi dræmrar sölu bíla í Evrópu og hefur það að markmiði að tvöfalda sölu sína í Indlandi og ætlar einnig að reisa samsetningarverksmiðju í Kína sem opna á árið 2016. Heildarsala Renault og Dacia á síðasta ári var 2,63 milljón bílar. 

Dacia Duster hefur selst vel í Evrópu, enda ódýr.





×