Bílar

Mini í efstu þremur sætum Dakar rallsins

Finnur Thorlacius skrifar
Mini bílar komu, sáu og sigruðu í hinu langa þolakstursralli Dakar, sem stóð yfir í tvær vikur. Ekki nóg með að Nani Roma og aðstoðarökumaður hans Michel Perin hafa ekið Mini bíl, þá komu Mini bílar einnig í næstu tveimur sætum keppninnar.

Það voru hinir reyndu ökumenn Stephan Peterhansel og Nasser Al-Attiyah sem stýrðu þeim bílum. Það tók sigurvegarann 50 klukkutíma og 44,58 mínútur að klára rallið og kom Peterhansel í mark aðeins 5 mínútum síðar. Minna en helmingur keppenda luku rallinu, sem reyndist óvenju erfitt í ár.

Keppt er í mörgum flokkum, þ.e. bílum, mótorhjólum, fjórhjólum og trukkum og eru keppendur oftsinnis hvor fyrir öðrum, sama hverju þeir aka. Sigurvegarinn í bílaflokki, Nani Roma, hefur einnig unnið mótorhjólaflokk Dakar rallsins, m.a. fyrir 10 árum.

Sumir voru óheppnir og kláruðu ekki rallið.





×