Bílar

Besti pabbi í heimi

Finnur Thorlacius skrifar
Hvað gerir besti pabbi í heimi til að gleðja dóttir sína nema leigja Chevrolet Corvettu og kenna henni að gera kleinuhringi á þessum ofuröfluga bíl. Dóttirin er dálítið feimin í fyrstu við allt afl bílsins en sýnir síðan góða takta og býr til gúmmíský úr aftudekkjum bílsins og hreinlega hverfur í reyk. Ekkert mjög leiðinlegt hjá henni. 

Ekki er víst að bílaleigan hafi verið mjög hrifin af þessu, enda nokkuð víst að dágóður hluti dekkjanna hafi horfið að vit skýjanna. En hún kann núna að gera kleinuhringi ef hún kemst aftur undir stýri á svo öflugum bíl.






×