Bílar

22 milljónir bíla seldust í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Skelfileg mengun er í stærstu borgum Kína.
Skelfileg mengun er í stærstu borgum Kína.
Aldrei hafa fleiri bílar selst í neinu landi á einu ári en í Kína í fyrra, eða 21,98 milljón bílar. Það er um fjórðungur allrar bílasölu heimsins í fyrra. Árið 2012 seldust 17,93 milljónir bíla þar og það stefnir í 24 til 24,5 milljón bíla sölu í ár.

Mjög stór hluti þeirra bíla sem seldust í Kína eru framleiddir af þýskum, bandarískum, japönskum, S-kóreskum og indverskum bílaframleiðendum en þó vex kínverskum bílaframleiðendum alltaf ásmegin.

Kínverski bílaframleiðandinn BYD ætlar að hefja sölu bíla sinna í Bandaríkjunum á næsta ári og fleiri munu líklega koma í kjölfarið. Sala bíla í Kína hefur aukið á gríðarmikla mengun sem er í stærstu borgum landsins og hefur mengunin mælst allt að 40 sinnum meiri en alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) setur sem heilsuspillandi. Vart sést þar á milli húsa, en stóran þátt í þessari mengun eiga reyndar kolabrennsluorkuver. 







×