Bílar

Toyota seldi 1,28 milljón Hybrid-bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota Prius í tveimur útfærslum.
Toyota Prius í tveimur útfærslum.
Toyota leiðir brautina í sölu Hybrid-bíla og jók söluna úr 1,22 milljónum slíkra bíla árið 2102 í 1,28 milljón bíla í fyrra. Í ljósi þess að aukningin milli 2011 og 2012 var tvöföldun í sölu þeirra er þessi aukning harla lítil.

Taka verður tilliti til þess að minnkun var í sölu þannig bíla árið 2011 sökum jarðskjálftans stóra það ár. Mest sala Hybrid bíla Toyota hefur verið í heimalandinu Japan, en vöxturinn þar í fyrra nam eins 1.200 bílum og endaði í 679.100 bílum. Það virðist því vera ákveðin stöðnum í sölu Hybrid-bíla, hvort sem litið er til heimamarkaðarins sem og í heiminum öllum.

Vöxtur í sölu þeirra í Bandaríkjunum nam 4% í fyrra, sem er minni vöxtur en í heildarsölunni þar svo því má segja að sala þeirra sé frekar á undanhaldi en hitt. Toyota ætlar að kynna enn fleiri gerðir Hybrid-bíla í ár og hvort það dugar til að viðhalda eða auka sölu þeirra á eftir að koma í ljós. 






×