Bílar

Kína stærsti markaður Porsche í ár

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Panamera á bílasýningu í Kína.
Porsche Panamera á bílasýningu í Kína.
Langstærsti markaður fyrir bíla í heiminum er Kína og taldi hann ríflega fjórðung allra seldra bíla á síðasta ári. Hlutdeild Kína verður að líkum enn stærri í ár. Hjá sumum framleiðendum utan Kína er sá markaður þegar orðinn stærstur og sem dæmi um það eru nær 75% allra Buick bíla seldir í Kína.

Porsche á von á því að Kína verði stærsti markaður fyrirtækisins í ár og ef það skildi nú ekki gerast í ár yrði það í síðasta lagi á næsta ári. Porsche Cayenne jeppinn og Panamera limósínan, sem hvorugir teljast sem hreinræktaðir sportbílar, eru mjög vinsælir í Kína og sala þeirra telur mest í heildarsölu Porsche í Kína.

Porsche áætlar að nýi bíllinn Macan verði einnig mjög vinsæll þar, en sala hans þar hefst þó ekki fyrr en í ágúst. Porsche á von á því að salan í Kína muni ná 200.000 bílum árið 2018 en salan árið 2012 nam 162.000 bílum og fór þá Kína framúr Bandaríkjunum sem stærsti markaðurinn fyrir Porsche bíla. 






×