Bílar

Automobile prófar Subaru XV á Íslandi

Finnur Thorlacius skrifar
Kunnugleg sjón fyrir mörlandann.
Kunnugleg sjón fyrir mörlandann.
Á bílavef hins þekkta bílatímarits Automobile er eitt aðalumfjöllunarefnið prófun á Subaru XV Hybrid bíl á Íslandi. Í greininni kemur fram að staðarvalið sé einfaldlega tilkomið vegna áhuga þeirra sem prófuðu bílinn á að heimsækja Ísland.

Greinin byrjar reyndar svona: „Á Íslandi  festast stundum snjóplógarnir og að sú staðreynd sé alls ekki hughreystandi fyrir leiðangursmenn“.  Greinarritara fannst einnig kjörið að prófunin á þessum nýja Hybrid-bíl færi fram í landi þar sem 72% allrar orku sem notuð er sé innlend og umhverfisvæn.

Einnig kemur fram í greininni að Subaru XV bílnum var fylgt af breyttum Toyota Land Cruiser og Land Rover Defender bílum á 44 tommu dekkjum í eigu Íslendinga sem í leiðinni voru þeirra leiðsögumenn.

Hér má finna greinina um reynsluaksturinn á Íslandi.

Sullað á Íslandi





×