Bílar

Honda Jazz slær út Toyota Prius í Japan

Finnur Thorlacius skrifar
Honda jazz er seldur undir nafninu Fit í Japan.
Honda jazz er seldur undir nafninu Fit í Japan.
Söluhæsti einstaka bíll í Japan í nýliðnum október var Honda Jazz. Með því velti hann úr sessi Toyota Prius bílnum sem hefur haldið titlinum samfellt í tvö og hálft ár.

Honda Jazz er nú seldur í Japan af nýrri kynslóð og október var fyrsti heili mánuðurinn sem hann er í sölu. Kaupendum virðist líka vel þessi nýja kynslóð af sölunni að dæma.

Það er víðar en í Japan sem Toyota tapar fyrsta sætinu í sölu bílgerða, en í sama mánuði tók Honda Civic efsta sætið af Toyota Corolla í flokki smærri bíla í Bandaríkjunum.

Mjög langt verður að bíða þessarar nýju kynslóðar Honda Jazz í Evrópu en það er á planinu að bjóða hann fyrst árið 2015 og verður það að teljast alveg með ólíkindum að kynna þá „nýjan tveggja ára bíl“, en svona er bíliðnaðurinn skrítinn. 







×