Bílar

Audi flýgur 70 metra yfir landamæri

Finnur Thorlacius skrifar
Ekki sérlega fagur Audi eftir flugferðina.
Ekki sérlega fagur Audi eftir flugferðina.
Fæstir fljúga yfir landamæri nema í flugvélum. Þessi Audi eigandi gerði það hinsvegar yfir landamæri Frakklands og Sviss og fór 70 metra í stökkinu og var mest í um 5 metra hæð.

Bíllinn fór heilan hring í flugferðinni en lenti á hjólunum. Hann stökk yfir gjaldtökuhús landamærastöðvarinnar á leiðinni. Þessi flugferð hefur væntanlega litið út eins og vel æft stuntatriði í bíómynd, en svo var þó alls ekki, heldur voru lukkudísirnar með í för.

Þetta gerðist í síðustu viku en bíllinn var langt yfir leyfilegum hámarkshraða og lenti á vegriði og fór svona óvenjulega yfir landamærin. Ökumaðurinn gaf þá skýringu á óhappinu að hann hafi verið að endurstilla leiðsögukerfi bílsins, en það er greinilega ekki ráðlegt á mikilli ferð.

Bæði ökumaðurinn og farþegar hans komust svo til ómeiddir úr óhappinu, þótt ótrúlegt megi virðast, en bílstjórinn meiddist þó aðeins á hendi. Bíllinn er þó ónýtur, eins og glögglega sést. 


Hér hófst flugferð Audi bílsins.





×