Bílar

5 nýir Saab til 2018

Finnur Thorlacius skrifar
Saab 9-3 Aero.
Saab 9-3 Aero.
National Electric Vevicle Sweden (NEVS), núverandi eigandi Saab, hefur tilkynnt að fyrirtækið muni framleiða 5 bílgerðir Saab bíla fram til ársins 2018. Sá fyrsti þeirra verður Saab 9-3 en einnig stendur til að bjóða sportbíl, jeppa, jeppling og stallbak.

Bílarnir verða smíðaðir í Tianjin í Kína í samstarfi við kínverska bílaframleiðandann Dongfeng og verða rafmagnsbílar. Dongfeng hefur nú þegar unnið með bílaframleiðendunum Nissan, Renault, Honda, Kia og Peugeot og framleiddi það 3,8 milljónir bíla í fyrra og enn fleiri í ár, þó sú tala liggi ekki enn fyrir.

Ekki er nú alveg víst hvort bílarnir munu bera merki Saab á húddinu þar sem NEVS hefur selt framleiðsluréttinn á Saab 9-3 til Scientific and Technological Research Council of Turkey (TUBITAK), en til stendur hjá þessari tyrknesku stofnun að gera Saab 9-3 að þjóðarbíl Tyrklands.






×