Bílar

Sala bíla 92% meiri í nóvember

Finnur Thorlacius skrifar
Sala á nýjum bílum hefur tekið kipp í ár og sölutregðan frá hruni virðist afstaðin.
Sala á nýjum bílum hefur tekið kipp í ár og sölutregðan frá hruni virðist afstaðin.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1. til 30. nóvember sl. jókst um 92% en nýskráðir  fólksbílar á þessu tímabili voru 793 stk. á móti 413 í sama mánuði 2014 eða aukning um 380 bíla.

44,4% aukning er í nýskráningum frá 1. janúar til og með 30. nóvember miðað við sama tímabil á fyrra ári en samtals hafa verið nýskráðir 13.192 fólksbílar það sem af er ári.

Sala nýrra bíla hefur verið góð enda þörf á endurnýjun bílaflotans aðkallandi. Nýskráningar bíla það sem af er ári eru komnar langt umfram spár en í byrjun árs var gert ráð fyrir uþb. 10.000 fólksbílum segir í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu.






×