Bílar

BMW kynnir lítinn hugmyndabíl í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Laglegur smábíll frá BMW.
Laglegur smábíll frá BMW. Autoblog
Það er ekki algengt að þýskir lúxusbílaframleiðendur kynni nýja bíla sína í Kína en það gerði BMW um helgina í Guangzhou. Þessi bíll er fjögurra dyra en smár bíll sem byggður er á BMW 1- og 2-línunni. Þessi bíll er hugsaður sem samkeppnisbíll Mercedes Benz CLA-Class og Audi A3.

Bíllinn er sannarlega með útlitseinkenni annarra BMW-bíla nú, en fremur hár til þaksins. Hjól bílsins eru höfð eins langt til endanna og kostur er til að auka innanrými hans og búa til gott pláss fyrir aftursætisfarþega. Hurðarhúnar bílsins eru vart sýnilegir og spretta fram við snertingu.

Engin tilviljun er að BMW kynni þennan bíl í Kína en hann er hugsaður fyrir yngri kynslóð íbúa þar. Innanrými bílsins er hannað utanum ökumanninn, en einnig er vel hugað að rými fyrir aftursætisfarþega þó bíllinn sé ekki stór. Bíllinn er ríkulega búinn og mikið vandað til efnisvals.

Nappa leður er í innréttingunni og viður og rispað ál að auki, svo hér er ekki á ferðinni neinn verkamannabíll. Bíllinn er með glerþaki og akstursupplýsingum er varpað uppá framrúðuna, auk þess sem upplýsingaskjár bílsins er óvenju stór, eða 8,8 tommur.

Samkvæmt þessari lýsingu á bílnum á hann fullt eins erindi á markaði í Bandaríkjunum og Evrópu, þó svo honum verði að fyrstu beint að kínverskum kaupendum. 

Tilraunabíllinn séður frá annarri hlið.





×