Bílar

Spánn framlengir útskiptibónusa við bílakaup

Finnur Thorlacius skrifar
Bílaumferð á Spáni.
Bílaumferð á Spáni. news.kyero.com

Á Spáni hefur bíleigendum í nokkurn verið greitt af ríkisstjórn landsins við skipti á eldri bílum í nýja og minna mengandi bíla. Nú hefur verið ákveðið að framlengja þessar greiðslur fram til loka júlí á næsta ári.

Greiðslurnar hafa orðið til þess að bílasala hefur vaxið á Spáni í 26 mánuði í röð og einnig er það talið hafa örvað efnahag í leiðinni, en Spánn er að stíga upp úr mikilli efnhagslægð. Framlag stjórnar Spánar sem gilda átti frá maí í ár og til ársloka nemur 225 milljónum evra, eða 31,7 milljörðum króna.

Spænska ríkisstjórnin lítur á þessa aðgerð sem vænlega leið til að losna við gamla bíla í landinu, auka öryggi vegfarenda með bílum með mun betri öryggisbúnaði og örva bíliðnað í landinu í leiðinni. 






×