Bílar

Nýr Range Rover Evoque sýndur á morgun

Finnur Thorlacius skrifar
Nýr Range Rover Evoque verður sýndur á morgun hjá BL.
Nýr Range Rover Evoque verður sýndur á morgun hjá BL.

BL frumsýnir á morgun, laugardag, nýjan Land Rover Evoque. Fyrir utan fágaðri framenda og endurhannað mælaborð er nýr Evoque kominn með léttari, en um leið bæði kraftmeiri og talsvert sparneytnari INGENIUM dísilvél.

Sportjeppinn er að sjálfsgögðu búinn hinu fullkomna fjórhjóladrifi Land Rover og hægt er að velja milli 150 og 180 hestafla véla sem báðar eru við 9 gíra sjálfskiptingu.

Með nýju skiptingunni (TD4) hefur eldsneytisnotkun og CO2 útblátur verið bætt um 17% án þess að gefa neitt eftir í afli og eiginleikum enda er hröðun jeppans úr 0-100 km einungis 7,6 sekúndur.

Opið verður hjá BL á morgun, laugardag, milli kl. 12 og 16 og verða reynsluakstursbílar til reiðu.






×