Bílar

Endurbættur Auris til sýnis hjá Toyota

Finnur Thorlacius skrifar
Endurbættur Toyota Auris.
Endurbættur Toyota Auris.
Á morgun, laugardaginn 12. september verður sýning hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota á nýjum Auris. Opið er hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi á laugardag frá kl. 12 – 16.

Á sýningunni má sjá endurbætta hönnun á Auris sem fá má í mörgum útgáfum með dísil- og bensínvélum auk Hybridútfærslu. Auris er þekktur fyrir ríkulegan staðalbúnað og lipurð í akstri.

Klukkan 13:30 mun Páll Óskar taka við nýjum Auris í Toyota Kauptúni og kveður þar með bláu Corolluna sem hann hefur ekið síðan hann keypti hana nýja árið 1997.  Auk þess tekur Páll Óskar nokkur lög.






×