Bílar

Meðalverð notaðra bíla aldrei hærra í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Gríðarleg sala á nýjum pallbílum hækkar meðalverð notaðra bíla.
Gríðarleg sala á nýjum pallbílum hækkar meðalverð notaðra bíla.
Aldrei fyrr hefur meðalverð notaðra bíla verið hærra en á öðrum ársfjórðungi þessa árs í Bandaríkjunum. Meðalverðið var 18.800 dollarar, eða 2,4 milljónir króna. Það er Edmunds sem tekur saman þessar upplýsingar og birtir ársfjórðungslega.

Hækkunin á milli ára er 7,6%, en einnig varð 5,7% hækkun fyrir ári. Það sem keyrt hefur upp meðalverðið er góð sala bíla því þeir eldri fara í sölu og einnig hækkandi verð á nýjum bílum og þeir eldri fylgja með. Mikið af þessum eldri bílum eru pallbílar og verð þeirra er talsvert hærra en á fólksbílum.

Meðalverð nýrra bíla sem seldir hafa verið í Bandaríkjunum á öðrum ársafjórðungi þessa árs var 33.340 dollarar, eða 4,3 milljónir króna og er það meðalverð líka talsvert hærra en í fyrra og aftur á sala pallbíla þar mikinn þátt.

Ekki er hækkun á verði notaðra bíla jafnt yfir allar bílgerðir. Bílar yngri en tveggja ára hafa reyndar lækkað í verði á milli ára en bílar 8 ára og eldri hafa hækkað um 11%. Notaðir lúxusbílar hafa almennt lækkað í verði milli ára, líkt og nýlegir bílar. Því eru líklega bestu kauptækifærin í þeim.







×