Bílar

Suzuki kemur aftur með Baleno til Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Suzuki Baleno.
Suzuki Baleno.
Suzuki ætlar að breikka vörulínu sína í Evrópu með tilkomu Baleno, sem er nokkru stærri bíll en Suzuki Swift, sem er söluhæsta bílgerð Suzuki í Evrópu. Sala Baleno hefst á næsta ári og bílnum verður beint að kaupendum sem ekki vilja eyða miklum fjármunum í rúmmikinn bíl sem eyðir litlu og er auk þess frá traustum bílaframleiðanda.

Á meðal vélarkosta í Baleno er ný 1,0 lítra forþjöppuvél, öflug en afar sparneytin. Suzuki ætlar að sýna Baleno á bílasýningunni í Frankfürt um miðjan þennan mánuð og salan hefst svo með næsta sumri. Baleno með keppa við marga við marga vinsæla bíla í sínum flokki, þeim söluhæsta allra stærðarflokka bíla. Í þeim flokki eru til dæmis Skoda Fabia, Hyundai i20 og Kia Rio.  







×