Bílar

Fyrrum yfirmenn Porsche ákærðir vegna markaðsmisnotkunar

Finnur Thorlacius skrifar
Wendelin Wiedeking fyrrum forstjóri Porsche á yfir höfði sér 5 ára fangelsisdóm.
Wendelin Wiedeking fyrrum forstjóri Porsche á yfir höfði sér 5 ára fangelsisdóm.
Fyrir sex árum síðan höfðu nokkrir af yfirmönnum bílaframleiðandans Porsche áform um yfirtöku á 75% hlutafjár í Volkswagen og í því augnamiði gáfu þeir þá frá sér villandi upplýsingar til fjárfesta.

Þessar villandi upplýsingar komu sér illa við marga og í kjölfarið rigndi inn kærum til handa þessum yfirmönnum Porsche, en ekkert varð af yfirtöku Porsche á Volkswagen, heldur þveröfugt. Meðal hinna kærðu er Wendelin Wiedeking, fyrrum forstjóri Porsche og Holger Haerter fyrrum fjármálastjóri Porsche.

Ef þeir verða kærðir fyrir markaðsmisnotkun eiga þeir yfir höfði sér 5 ára fangelsi. Í fyrstu voru einnig tveir meðlimir Porsche-fjölskyldunnar ákærðir í þessu máli, þ.e. þeir Ferdinandi Piech og Wolfgang Porsche. Kærur á hendur þeim hafa nú verið felldar niður. Dómur í þessu máli fyrrum forstjóra og fjármálastjóra Porsche verður kveðinn upp 22. október.






×