Enski boltinn

Kaupa Delap og eru í við­ræðum við Sancho

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Samherjar á næstu leiktíð.
Samherjar á næstu leiktíð. Vísir/Getty Images

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur ákveðið að bíða ekki boðanna og hefjast strax handa að undirbúa næsta tímabil. Svo virðist sem að framherjinn Liam Delap muni spila í treyju félagsins á næstu leiktíð og þá virðist Chelsea hafa ákveðið að kaupa Jadon Sancho eftir allt.

Delap átti virkilega fínt tímabil með Ipswich Town þó svo að liðið hafi fallið. Skoraði hann alls 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni ásamt því að gefa tvær stoðsendingar. Delap er falur fyrir 30 milljónir punda og fjöldi liða á eftir honum vegna verðmiðans. Hann virtist vera á leið til Manchester United en hætti við.

Nú greinir Sky Sports frá því að Chelsea sé að ganga frá kaupunum á þessum 22 ára framherja. Félagið vill fá hann sem strax svo Delap verði löglegur þegar HM félagsliða hefst um miðjan næsta mánuð.

Þá virðist sem mark Sancho í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu hafi sannfært forráðamenn félagsins að festa kaup á honum. Sancho var á láni hjá Chelsea frá Man United en lengi vel virtist sem Chelsea væri frekar til í að borga sekt heldur en að standa við samninginn sem það gerði við Man Utd.

Sky Sports greinir frá því að Chelsea sé í samningaviðræðum við Sancho en hann þyrfti þá að samþykkja samning sem passar inn í launastrúktúr félagsins. Hann mun kosta Chelsea 25 milljónir punda en Sky Sports greinir ekki frá því hvort leikmaðurinn þurfi að taka á sig launalækkun.

Chelsea endaði tímabilið af krafti. Ásamt því að tryggja sér Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð þá vann það frábæran 4-1 sigur á Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar. Það verður þó stutt sumarfrí þar sem HM félagsliða hefst 15. júní. Þar er Chelsea í riðli með ES Tunis, Flamengo og León.


Tengdar fréttir

Chelsea Sam­bands­deildar­meistari 2025

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hafði betur gegn Real Betis frá Spáni í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Spánverjarnir komust yfir en bláliðar frá Lundúnum svöruðu með þremur mörkum og unnu á endanum 4-1 sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×