Enski boltinn

Settu met í töpum en spila í Meistara­deild Evrópu

Sindri Sverrisson skrifar
Það virðist ekki enn öruggt að Ange Postecoglou verði áfram stjóri Tottenham, eftir skelfilegt gengi í ensku úrvalsdeildinni en Evrópudeildarmeistaratitil og sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Það virðist ekki enn öruggt að Ange Postecoglou verði áfram stjóri Tottenham, eftir skelfilegt gengi í ensku úrvalsdeildinni en Evrópudeildarmeistaratitil og sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Getty/Justin Setterfield

Með 4-1 tapinu á heimavelli gegn Brighton í gær setti Tottenham met yfir flest töp án þess að það kosti fall, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Það er ástæðan fyrir því að óvissa ríkir um framtí Ange Postecoglou, þrátt fyrir Evrópudeildarmeistaratitil og sæti í Meistaradeildinni.

Tottenham tapaði 22 af 38 deildarleikjum sínum á tímabilinu og endaði með aðeins 38 stig í 17. sæti deildarinnar. Engu að síður var liðið langt frá því að falla því það endaði 13 stigum fyrir ofan Leicester sem endaði í 18. sæti og féll ásamt Ipswich og Southampton.

Vegna sigursins á Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar verður Tottenham eitt af sex enskum liðum í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það var einn af fjórum sigrum Tottenham gegn United á leiktíðinni og voru sigurleikirnir gegn United 16% af öllum sigrum Tottenham á tímabilinu.

Enskir miðlar segja að þrátt fyrir langþráðan titil Tottenham, þann fyrsta frá deildabikarmeistaratitlinum árið 2008, ríki óvissa um framtíð Ange Postecoglou sem stjóra félagsins. Hann var þó sjálfur hissa þegar hann var spurður út í það í gær hvaða mat hann legði á nýafstaðið tímabil:

„Hvernig met ég það?! Framúrskarandi! Við unnum titil, sem við höfðum ekki gert í sautján ár, og við erum komnir í Meistaradeild Evrópu. Þið hefðuð getað spurt hvern sem er hjá þessu félagi í upphafi tímabilsins um hvort þeir myndu þiggja þetta og ég er nokkuð viss um að enginn myndi hafna því,“ sagði Postecoglou sem telur í raun fráleitt að til greina komi að hann haldi ekki áfram hjá Tottenham.

„Ég skal vera hreinskilinn. Mér hefur fundist það mjög skrýtið að þurfa að ræða um framtíð mína þegar við höfum afrekað eitthvað einstakt. Ég hef þurft að svara þessum spurningum vegna þess að enginn annar hjá félaginu er í aðstöðu til þess, býst ég við,“ sagði Postecoglou.

Eini maðurinn sem gæti gefið skýr svör um hvort Tottenham ætli að halda Postecoglou í starfi er Daniel Levy, stjórnarformaður, sem ekki hefur tjáð sig opinberlega enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×