Innlent

Rannsóknarleyfi Rastar hafnað

Jakob Bjarnar skrifar
Haraldur fagnar nú því sem hann kallar fullnaðarsigur í baráttunni við Röst sem vill rannsaka kolefnisbindingu sjávar með því að binda vítissóta í Hvalfirði.
Haraldur fagnar nú því sem hann kallar fullnaðarsigur í baráttunni við Röst sem vill rannsaka kolefnisbindingu sjávar með því að binda vítissóta í Hvalfirði.

„Ráðuneytið lauk afgreiðslu umsóknar Rastar um rannsóknarleyfi fyrir helgi og var félaginu tilkynnt með bréfi sl. föstudag að umsókn félagsins um rannsóknarleyfi hefði verið hafnað.“

Þetta er svar ráðuneytisins við sérstakri fyrirspurn Þorbjargar Gísladóttur sveitarstjóra Kjósarhrepps. Hún segist hafa sent fyrirspurnina eftir að hafa séð að Röst var byrjuð að koma sér fyrir með vinnubúðir við höfnina hjá Olíudreifingu, þar sem þeir hyggjast hafa aðsetur.

„Fullnaðar sigur! Samkvæmt pósti Utanríkisráðuneytisins í dag hefur rannsóknarleyfi Rastar í Hvalfirði verið hafnað. Íslensk náttúra sigraði að þessu sinni,“ segir Haraldur Eiríksson leigutaki Laxár í Kjós og Bugðu.

Vísir hefur þegar greint frá áhyggjum Haraldar og margra annarra af leyfisveitingum til handa rannsóknarfyrirtækinu Rastar.

Tvö hundruð tonn af vítissóta í Hvalfjörð

Haraldur segir að Röst vilji sturta 20 tonnum af vítissóta í Hvalfjörð. Haraldur taldi einsýnt að þarna væri risastórt umhverfisslys í uppsiglingu.

Rannsóknarfyrirtæki Röst er óhagnaðardrifið félag sem leitar lausna í umhverfismálum. Vísir hefur skrifað nokkrar fréttir sem hafa fjallað um starfsemina en Röst vildi rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði. Þetta hins vegar lagðist ekki vel í Harald og marga aðra sem við Hvalfjörð búa. Þeir töldu meðal annars stjórnsýsluna ekki í lagi í tengslum við málið.

Rastar-menn eru vitaskuld á öndverðu máli:

En Haraldur er ódeigur í vörninni:

„Í aðdraganda umsóknar Rastar leitaði fyrirtækið liðsinnis Hafrannsóknastofnunar sem hefur verið við grunnrannsóknir í firðinum undanfarið ár til að undirbúa eitrunina. Til að sýna vilja í verki færði Röst stofnuninni 100 milljónir í tveimur áföngum – og virkjaði með því starfsfólkið til góðra verka,“ skrifaði Haraldur í grein.

Fagnar því að ráðuneytið hlusti á áhyggjur íbúa

Þorbjörg tekur í sama streng, hún segir hreppinn ávallt standa með Hvalfirði, dýralífi og náttúru. 

„Við eigum í vök að verjast vegna uppbyggingar á mengandi iðnaði á Grundartanga svæðinu í í Hvalfjarðarsveit. Kjósarhreppur er lítið sveitarfélag sem byggir afkomu sína á hreinni náttúru og ómenguðu umhverfi og leggur alla áherslu á að standa með því nú sem fyrr. Það blæs okkur því byr í brjóst að finna að ráðamenn hlusta á rök þegar kemur að svo vafasömum aðgerðum. Það er mikilvægt að verkefni sem sett eru af stað undir því yfirskyni að kolefnisjafna séu rýnd og kjarninn skilinn frá hisminu.“


Tengdar fréttir

Sveitarfélögin við Hval­fjörð á önd­verðum meiði um basa­til­raun

Afstaða sveitarfélaganna tveggja við Hvalfjörð til fyrirhugaðrar tilraunar með basalausn í sumar er gerólík. Hvalfjarðarsveit leggst ekki gegn því að leyfi verði veitt fyrir tilrauninni en Kjósarhreppur er alfarið á móti. Bæði Hafró og Umhverfisstofnun hafa mælt með því að leyfið verði veitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×