Moratti: Sneijder ekki neyddur til að endursemja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. nóvember 2012 16:15 Tímakaup Sneijder hefur snarhækkað eftir að hann var tekinn út úr liðinu hjá Inter. Nordicphotos/Getty
Massimo Moratti, forseti Inter, segir ekkert til í því að félagið ætli sér að neyða Wesley Sneijder til þess að taka á sig launalækkun. Hollendingurinn hefur lítið spilað með Inter undanfarnar vikur. Moratti segir ástæðu þess að Sneijder spili svo lítið aðeins knattspyrnulegs eðlis. Marco Branca, yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, lét hafa eftir sér í vikunni að Sneijder myndi ekki spila fyrir Inter fyrr en hann hefði ákveðið framtíð sína. Í henni fælist að skrifa undir nýjan samning þar sem Hollendingurinn tæki á sig launalækkun. „Þótt samningur sé í gildi er engu að síður í lagi að spyrja leikmann hvort til greina komi að breyta samningnum. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að leikmaðurinn spilar ekki í augnablikinu vegna tæknilegra ástæðna," segir Moratti. „Augljóslega vill enginn missa leikmann í hans gæðaflokki og sem fjárfest hefur verið jafnmikið í og raunin er. Það væri líka stórundarleg ákvörðun að greiða honum himinhá laun og láta hann ekki spila. Ég tel hann andlega og líkamlega kláran til þess að spila. Þjálfarinn velur hins vegar liðið," segir Moratti. Sneijder, sem síðast spilaði fyrir Inter í september, er launahæsti leikmaður liðsins. Árstekjur Hollendingsins 28 ára, eru um sex milljónir evra eða sem nemur tæpum milljarði íslenskra króna. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við ítalska félagið.
Ítalski boltinn Mest lesið Boxari lést tveimur vikum eftir að hafa gift sig Sport Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Uppgjörið: Valur - Fram 27-28 | Fram Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tólf ár Handbolti Keppandi á Steraleikunum bætti 16 ára gamalt heimsmet Sport Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Enski boltinn „Væri alveg til í að hafa þá sem tengdasyni“ Handbolti Starf Amorims öruggt Enski boltinn Dagskráin í dag: Ellefu beinar útsendingar Sport „Við ætluðum okkur að vinna titla og vinna þennan titil“ Handbolti „Þjáning í marga daga“ Handbolti Fleiri fréttir Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Ósáttur með fáar mínútur í úrslitunum og íhugar framtíðina Börsungar renna hýru auga til Rashford og Diaz Glódís rústaði Guðrúnu og Ísabellu í sjö manna bolta Modric kveður Real Madrid Sandra tekur „rykugu hanskana af hillunni“ til hjálpar FH Ísland mætir ekki Maríu en glímir við þrjár úr stærsta leik ársins „Verð fyrir vonbrigðum ef ég fæ ekki að halda áfram“ Þeir bestu (8.-7. sæti): Markamaskínur frá Dalvík og Danmörku Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Vinkonur ósáttar við ákvörðun Söru: „Við töluðumst ekki við í smátíma“ Amorim vildi ekki ræða framtíðina „Okkur er alveg sama núna“ Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Tottenham vann Evrópudeildina Sveindís til félags í eigu stórstjarna Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Vázquez víkur fyrir Trent Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Bellingham þarf að fara í aðgerð Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd Yamal tekur við tíunni hjá Barcelona Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Guardiola hótar að hætta „Að vinna Evrópudeildina mun ekki leysa öll okkar vandamál“ „Verð aldrei trúður“ „Manchester er heima“ Sjá meira