Körfubolti

„Þegar maður klæðist þessari treyju er maður stór“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin Hermannsson var stigahæstur í síðustu tveimur leikjum Íslands á EM.
Martin Hermannsson var stigahæstur í síðustu tveimur leikjum Íslands á EM. vísir/hulda margrét

Martin Hermannsson segir að íslenska karlalandsliðið sé komið til að vera á stærsta sviði körfuboltans þrátt fyrir að vera úr leik á EM.

Eftir fjóra jafna leiki steinlá Ísland fyrir Frakklandi í dag, 114-74. Franska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og gaf því íslenska engin grið.

„Þetta var kannski viðbúið. Eftir þétt og langt mót kom það bersýnilega í ljós hvort liðið er með meiri breidd. Þeir klikkuðu ekki á skoti og þá er erfitt að eiga við þetta,“ sagði Martin í samtali við Val Pál Eiríksson eftir leikinn gegn Frakklandi. 

„Við höfum lagt allt í þetta verkefni og erum að nálgast þessar þjóðir,“ bætti Martin.

Hann segir að tilfinningarnar eftir mótið séu blendnar.

„Það er rosa erfitt að standa hérna og greina þetta. Margt sem gekk vel og margt sem má betur fara. En við lögðum okkur alla í þetta og undirbúningurinn var frábær,“ sagði Martin.

„Við erum tiltölulega nýbyrjuð að skrifa okkar körfuboltasögu á þessu móti. Við vorum mun betri en á EM 2015 og 2017 og sýndum að við erum komnir til að vera.“

Eftir erfiða byrjun á mótinu spilaði Martin vel í síðustu tveimur leikjunum og var stigahæstur í þeim báðum.

„Það var gott að geta sýnt fólki að ég er hér ennþá,“ sagði Martin sem nýtur þess til hins ítrasta að spila fyrir íslenska landsliðið.

„Þetta var tilfinningarússíbani. Við renndum blint í sjóinn. Það er enginn með reynslu í að leiða landslið á stórmóti og við erum ekki vanir að spila svona marga leiki á skömmum tíma. En þegar maður klæðist þessari treyju er maður stór og það er alltaf gaman að vera með þessum gaurum. Ég hef verið með þetta að atvinnu í rúman áratug og þetta er ekki alltaf gaman en það er alltaf gaman með landsliðinu. Ég trúi því að Ísland sé komið til að vera. Við þurfum gefa í og halda áfram.“

Martin langar á fleiri stórmót með íslenska liðinu.

„Það eru bara tvö ár í HM og verður EM 2029. Auðvitað verða einhverjar breytingar en ég á fullt eftir. Þrjátíu ár er ekkert í þessum körfubolta,“ sagði Martin að lokum.


Tengdar fréttir

Einkunnir á móti Frakklandi: Engin orka og engin trú

Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði fimmta leiknum sínum í röð á Evrópumótinu í Póllandi en að þessu sinni kom stóri skellurinn sem liðið hafði ekki kynnst hingað til í mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×