Handbolti

Bein út­sending: Hverjum mæta strákarnir okkar á EM?

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska landsliðið vann alla sex leiki sína í undankeppni EM og hefur átt fast sæti á mótinu frá aldamótum.
Íslenska landsliðið vann alla sex leiki sína í undankeppni EM og hefur átt fast sæti á mótinu frá aldamótum. vísir/Anton

Það ræðst í dag í beinni útsendingu hvaða lið verða í riðli með Íslandi á EM karla í handbolta í janúar á næsta ári. Útsendingu EHF má sjá hér á Vísi.

Bein útsending er í spilaranum hér að neðan en athöfnin hófst klukkan 17. Dregið verður í sex fjögurra liða riðla en það er þegar ljóst að Ísland mun spila í F-riðli, í Kristianstad í Svíþjóð.

Ísland var á meðal fyrstu liða til að tryggja sig inn á EM en mótið fer fram í Danmörku, Svíþjóð og Noregi frá 15. janúar til 1. febrúar.

Íslandi var raðað í 2. styrkleikaflokk af fjórum fyrir dráttinn í dag. Ísland var sömuleiðis eitt af sex liðum sem raðað var í riðil fyrir löngu síðan. Svíar völdu Íslendinga í F-riðilinn sem spilaður verður í Kristianstad enda fjölmenntu Íslendingar til bæjarins á HM 2023 og vöktu athygli. Þýskaland var sett í A-riðil, Danmörk í B-riðil, Noregur í C-riðil, Færeyjar í D-riðil og Svíþjóð í E-riðil.

Tvö efstu liðin úr hverjum riðli komast áfram í milliriðla. Ef Ísland kemst upp úr F-riðli mun liðið spila í milliriðli tvö í Malmö, ásamt liðunum úr D- og E-riðli. Tvö efstu liðin í milliriðlinum komast svo í undanúrslit mótsins.

Styrkleikaflokkarnir:

Flokkur 1: Frakkland, Danmörk, Svíþjóð, Þýskaland, Ungverjaland, Slóvenía.

Flokkur 2: Portúgal, Noregur, ÍSLAND, Króatía, Spánn, Færeyjar.

Flokkur 3: Austurríki, Holland, Svartfjallaland, Tékkland, Pólland, Norður-Makedónía.

Flokkur 4: Georgía, Serbía, Sviss, Rúmenía, Úkraína, Ítalía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×