Dramatíseraðir krúnuleikar Windsoranna Þórarinn Þórarinnsson skrifar 29. nóvember 2019 08:30
Netflix fann konunglega gullnámu í The Crown. Þriðja þáttaröðin er brakandi fersk milli tannanna á fólki og vinsældirnar eru slíkar að sú fjórða er handan við hallarhornið og þá munu heldur betur æsast krúnuleikar þegar Díana prinsessa, Sarah Ferguson og Margaret Thatcher storma á sviðið og atburðir færast stöðugt nær okkur í tíma. Langlífi þáttanna er í raun, eins og hjá Elísabetu sjálfri, skrifað inn í genamengi þeirra þar sem perversjónir, klaufagangur afkomenda Elísabetar, með reglulegu tilfinningalegu uppnámi í höllinni, leggja grunninn að framhaldsþáttum hraðar en hægt er að kvikmynda þá. Kannski eigum við eftir að fá að sjá Obama knúsa litlu ömmustrákana hennar Díönu í náinni Netflix-framtíð? Munu foreldrar Meghan tromma upp við hirðina? Eigum við kannski eftir að slást í för með Andrési prins í heimsókn til höfuðperra ríka og fræga fólksins, Jeffrey Epstein? Möguleikarnir eru endalausir.Þögult pönk Með örfáum undantekningum skautar The Crown alveg fram hjá tónlistarmenningarsögulegum stórbyltingum í Bretlandi sem endurómuðu um gervalla heimsbyggðina. David Bowie fékk þó sitt augnablik undir lok þriðju seríu þegar Anna prinsessa brunar á kagganum sínum til Buckingham-hallar með Starman í botni. Virðingarvert en hvernig er hægt að sniðganga Bítlana, líta fram hjá Stones og láta eins og pönkið og Sex Pistols hafi ekki snúið öllu á hvolf með því að leika undir silfurafmæli drottningarinnar með því að garga God Save The Queen með eftirminnilegum tilþrifum?Klámvísukvöld í Hvíta húsinu Fólk þarf ekki að hafa neina sérstaka yfirburðaþekkingu á bresku konungsfjölskyldunni til þess að átta sig á að Windsorarnir eru ekki eins áhugaverðir og þeir eru í The Crown. Líklega er Filippus drottningarmaður kaldlyndur, svipljótari en Voldemort og fádæma orðheppinn þegar hann er í skepnuskapi, sá eini þeirra sem gæti spjarað sig hjálparlítið sem persóna í skáldskap. Sukklíf og helsjúkt hjónaband Margrétar prinsessu hefur einnig með smá kryddi reglulega kippt þáttunum upp um einn gír eða svo. Og aldrei hefur hún verið hressari en í þriðju seríu þar sem Helena Bonham-Carter glansar í hlutverki hennar. Hún og sá endalaust vanmetni leikari Clancy Brown, sem Lyndon B. Johnson, forseti Bandaríkjanna, eru burðarbitar eins besta og umtalaðasta þáttar nýju seríunnar þegar Margrét mætir til kvöldverðar í Hvíta húsinu.Þrátt fyrir ströng fyrirmæli frá Betu, stóru systur, um að hún eigi að bera sig konunglega sleppir hún fram af sér beislinu, fer með klámvísur, gerir lítið úr John Kennedy og heillar Johnson upp úr skónum, opnar lánalínu og bjargar efnahag Bretlands. Frábær þáttur og skemmtileg saga en því miður algert kjaftæði byggt á staðreyndum. Peter Morgan, þáttarstjórnandi The Crown, hefur viðurkennt að hafa skellt skáldafáknum á skeið í þessum þætti og búið til hliðarveruleika þar sem Margrét ryður út úr sér klámvísum, smellir kossi á forsetann og snýr heim sem hetja. Hún mætti vissulega til kvöldverðar í Hvíta húsinu, ásamt eiginmanninum Snowdon lávarði og í dagbók Hvíta hússins var fært til bókar að forsetinn hefði dansað umtalsvert þetta kvöld, við flestar konur á staðnum og hefði gengið heldur seint til náða. Óskir bresku ríkisstjórnarinnar um lánafyrirgreiðslu voru ekki á dagskrá prinsessunnar. Ekkert frekar en sá gagnkvæmi skilningur sem á að hafa myndast milli varaforseta Kennedys og varadrottningar Elísabetar. En hafa skal það sem betur virkarDAVOS, SWITZERLAND - JANUARY 22: Prince Andrew, Duke of York gestures as he speaks with business leaders during a reception with business leaders at the sideline of the World Economic Forum on January 22, 2015 in Davos Switzerland. Prince Andrew has publicly denied allegations he had sex with an underage teenager. He made the denial during a visit to the World Economic Forum in Davos, Switzerland, on Thursday. It was his first public appearance since the charges. (Photo by Michel Euler-WPA Pool/Getty Imaes)Prins pervertanna Andrés prins hefur lagt sitt þunga lóð á vogarskálar gremju móður sinnar og hefur heldur bætt í ef eitthvað er í seinni tíð. Eins og fífl hefur hann með perversjónum og hroka sennilega verið útlægur ger úr höllinni. Hann fitjaði upp á sitt konunglega trýni í fyrra þegar hann tjáði sagnfræðilegum ráðgjafa þáttanna að hann myndi aldrei horfa á The Crown. Sennilega eins gott hans vegna en við erum alveg til í að fá að sjá meira af skandalasögunni endalausu sem hann hefur skrifað sjálfum sér á lífsleiðinni.CAIRO, EGYPT - MARCH 20: TRH Camilla, Duchess of Cornwall and Prince Charles, Prince of Wales attend an evening reception on the first day of their 12 day official tour visiting Egypt, Saudia Arabia and India, on March 20, 2006 in Cairo, Egypt. The visits provide an opportunity to support the UK's international contribution and profile, with key themes to promote better understanding and tolerance between faiths, supporting environmental and conservation intiatives, and encouraging sustainable employment and training opportunities for young people. This is the Royal couple's second joint overseas tour, and is the first time Charles has visited Egypt since March 1995. (Photo by MJ Kim/Getty Images)Ekki alveg Júlía og Rómeó Eins og frægt er orðið hafði Camilla Shand, síðar ParkerBowles, hernumið hjarta Prinsins af Wales löngu áður en hann kvæntist lafði Díönu Spencer þrátt fyrir yfirlýsingar um að hann væri ekki alveg viss um merkinu þess að vera ástfanginn. Þessi frumástarsaga prinsins er ýkt hressilega í The Crown þar sem Karl og Camilla verða ígildi Rómeó og Júlíu sem Mountbatten lávarður, frændi hans, og amma hans, Elísabet drottningarmóðir, gengu úr skugga um að fengju ekki að njótast og fleyttu Camillu í hjónaband með sperrileggnum Parker-Bowles. Þetta gengur ekki alveg upp þar sem Mountbatten og drottningarmóðirin voru svarnir óvinir sem hefðu seint gengið í slíkt bandalag. Ást Karls á Camillu eins og hún birtist í þáttunum kviknaði áður en kynni þeirra hófust síðla árs 1972.
Birtist í Fréttablaðinu Kóngafólk Mest lesið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Lífið Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lífið Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Lífið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Fagurkeri selur miðbæjarperlu Lífið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Lífið Fleiri fréttir Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Sjá meira