Stuðningsmenn Man. City safna fyrir auglýsingu í Gazzetta dello Sport Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2013 19:45 Roberto Mancini. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar Roberto Mancini, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, keypti heilsíðuauglýsingu í Manchester Evening News þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum félagsins fyrir árin sín hjá City. Stuðningsmenn Manchester City voru afar ánægðir með gamla stjórann og stukku strax af stað með söfnun svo þeir gætu svarað í sömu mynt. Grazie Mancini - sjóðurinn var stofnaður og söfnunin í hann gengur frábærlega því 700 stuðningsmenn hafa þegar lagt til sjö þúsund pund eða 1,3 milljónir íslenskra króna. Stuðningsmenn Manchester City ætla að kaupa heilsíðu auglýsingu í íþróttadagblaðinu La Gazzetta dello Sport og birta hana á laugardaginn. Þar verður Mancini þakkað fyrir góð störf en undir hans stjórn vann Manchester City bæði Englandsmeistaratitilinn (2012) og enska bikarinn (2011). Þetta voru fyrstu stóru titlar félagsins síðan 1969. Roberto Mancini var rekinn frá Manchester City eftir að liðið tapaði bikarúrslitaleiknum á móti Wigan sem féll síðan úr ensku úrvalsdeildinni aðeins nokkrum dögum síðar. City-liðið hafði áður misst Englandsmeistaratitilinn til Manchester United og mistekist að komast upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað árið í röð.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Boxari lést tveimur vikum eftir að hafa gift sig Sport Frakkar sjokkeraðir vegna hópsins sem kemur til Íslands Fótbolti Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Enski boltinn Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ Körfubolti Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Körfubolti Þeir bestu (6. sæti): Mókollur, Uxi og sumarið 1995 Íslenski boltinn Blóðgaði dómara Körfubolti Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Enski boltinn Var ekki nógu ánægður með Trent Enski boltinn Fleiri fréttir Þriggja leikja banns Stefáns gagnrýnt: „Aldrei reynt að meiða neinn“ Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Breiðablik og Valur vonast eftir Disney-ævintýri Frakkar sjokkeraðir vegna hópsins sem kemur til Íslands Þeir bestu (6. sæti): Mókollur, Uxi og sumarið 1995 Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Ósáttur með fáar mínútur í úrslitunum og íhugar framtíðina Börsungar renna hýru auga til Rashford og Diaz Glódís rústaði Guðrúnu og Ísabellu í sjö manna bolta Modric kveður Real Madrid Sandra tekur „rykugu hanskana af hillunni“ til hjálpar FH Ísland mætir ekki Maríu en glímir við þrjár úr stærsta leik ársins „Verð fyrir vonbrigðum ef ég fæ ekki að halda áfram“ Þeir bestu (8.-7. sæti): Markamaskínur frá Dalvík og Danmörku Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Vinkonur ósáttar við ákvörðun Söru: „Við töluðumst ekki við í smátíma“ Amorim vildi ekki ræða framtíðina „Okkur er alveg sama núna“ Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Tottenham vann Evrópudeildina Sveindís til félags í eigu stórstjarna Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Vázquez víkur fyrir Trent Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Sjá meira