Fjórar milljónir ljósára í Evrópusætið 21. september 2006 21:05 Martin O´Neill hefur fullan hug á að koma Villa aftur í sviðsljósið í Evrópukeppninni - en segir takmarkið fjórar milljónir ljósára í burtu NordicPhotos/GettyImages
Martin O´Neill segir að alla hjá Aston Villa dreymi vissulega um að koma liðinu í Evrópukeppnina á ný, þar sem liðið hefur ekki látið að sér kveða síðan árið 1982 þegar liðið vann sigur í Evrópukeppninni. O´Neill er þó hógvær á möguleika liðsins og segir Evrópusætið fjórar milljónir ljósára í burtu á þessum tímapunkti. Aston Villa hefur byrjað ágætlega í deildarkeppninni í ár og hefur ráðning O´Neill og sala félagsins til ameríska milljarðamæringsins Randy Lerner vakið bjartsýni í herbúðum þess. O´Neill varð sjálfur Evrópumeistari með Nottingham Forest sem leikmaður og stýrði liði Glasgow Celtic í meistaradeildinni í nokkur ár áður en hann kom til Villa. Hann vill ólmur upplifa Evrópustemminguna á ný - að þessu sinni í Birmingham. "Þessi kvöld eru ótrúleg. Það jafnast ekkert á við heimaleiki í miðri viku í meistaradeildinni. Hávaðinn var rosalegur hjá Celtic og ég hef ekki heyrt aðra eins stemmingu oft á ferlinum. Ég hef líka talað við menn hérna sem upplifðu stemminguna hérna hjá félaginu árið 1982. Það væri frábært að færa fólkinu hérna eitthvað á borð við þetta aftur - það er ekki nema fjórar milljónir ljósára í burtu í augnablikinu," sagði O´Neill glaðbeittur.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Körfubolti „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Körfubolti „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Körfubolti Amorim vildi ekki ræða framtíðina Fótbolti Ægir valinn verðmætastur Körfubolti Tottenham vann Evrópudeildina Fótbolti „Okkur er alveg sama núna“ Fótbolti Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Fótbolti Shaq segist hundrað prósent Körfubolti Sveindís til félags í eigu stórstjarna Fótbolti Fleiri fréttir Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Sjá meira