Atvinnuleysi minnkar 13. september 2006 11:32 Glitnir banki.
1.948 mann voru á atvinnuleysisskrá í síðasta mánuði hér á landi en það jafngildir 1,2 prósenta atvinnuleysi, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar. Í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis segir að atvinnuleysi í ágúst sé minna er Vinnumálastofnun gerði ráð fyrir í áætlun sinni en stofnunin hafði spáð 1,3-1,6 prósenta atvinnuleysi. Atvinnuleysið minnkar frá júlímánuði en þá var það skráð 1,4 prósent en 1,3 prósent í júní. Atvinnuleysi minnkar hjá báðum kynjum á höfuðborgarsvæðinu en litlar breytingar hafa verið á landsbyggðinni síðustu 3 mánuði. Á höfuðborgarsvæðinu mældist 1,2 prósenta atvinnuleysi í ágúst og á landsbyggðinni var atvinnuleysið það sama, 1,2%. Aukið atvinnuleysi í júlí skýrist að hluta til af ofmati á atvinnuleysi í kjölfar breytinga á verklagi með tilkomu nýrra laga um atvinnuleysistryggingar, að sögn Glitnis. Atvinnuleysistölurnar eru lægri en greiningardeild Glitnis gerði ráð fyrir og mun að öðru óbreyttu auka eitthvað við verðbólguþrýsting en í nýlegri þjóðhagsspá var gert ráð fyrir 1,6 prósenta atvinnuleysi að meðaltali á árinu. Þá segir að Vinnumálastofnun spái því að spenna á vinnumarkaði muni aukast í september vegna mikilla umsvifa og eftirspurnar á vinnumarkaði og geri ráð fyrir því að atvinnuleysi í september verði á bilinu 0,9-1,3 prósent.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Viðskipti erlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hugmyndin fæddist þegar þær hittust óvænt í hlíðum Helgafells Viðskipti innlent Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira