Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2025 12:33 Stuðningsmenn Sheffield Wednesday hafa komið mjög sterkir inn á síðustu dögum í miklum fjárhagsvandræðum félagsins. Getty/Cameron Smith Enska fótboltafélagið Sheffield Wednesday er í greiðslustöðvun en skiptastjórar Wednesday hafa tilkynnt að leikmenn og starfsfólk hafi fengið full laun greidd degi fyrr. Frábært framtak og kaupgleði stuðningsmanna félagsins reddaði málunum.
Þetta er mikil breyting fyrir alla hjá félaginu en starfsmenn og leikmenn hafa þurft að þola langvarandi mynstur mánaðarlegra greiðsluseinkana. BBC segir frá. Félagið, sem leikur í ensku B-deildinni, var sett í greiðslustöðvun og fékk tólf stiga refsingu í síðustu viku eftir margra mánaða ólgusjó undir stjórn eigandans Dejphon Chansiri. Á dögunum síðan þá hafa stuðningsmenn hætt sniðgöngu sinni á félaginu og Kris Wigfield, frá skiptastjórunum Begbies Traynor, sagði að stuðningsmenn hefðu þegar eytt meira en 500.000 pundum í miða og í verslun félagsins frá og með mánudeginum. Það gera meira en 82 milljónir íslenskra króna. Launagreiðslur höfðu borist of seint í fimm af þeim sjö mánuðum áður en skiptastjórar tóku við stjórn félagsins og bundu enda á tíu ára valdatíð Chansiri sem eiganda. „Þetta markar stórt skref fram á við í að koma á stöðugleika í rekstri félagsins og endurbyggja traust bæði innan félagsins og meðal stuðningsmanna okkar. Við hefðum ekki getað náð þessu án ótrúlegs stuðnings ykkar stuðningsmanna Wednesday,“ sagði í yfirlýsingu frá félaginu. „Endurkoma ykkar á Hillsborough, aukning í sölu á varningi og miðum og áframhaldandi trú ykkar á félaginu hafa gert þetta mögulegt.“ Stigafrádrátturinn þýðir að félagið er á botni B-deildarinnar með mínus sex stig og er sextán stigum frá öruggu sæti. View this post on Instagram A post shared by TNT Sports Football (@tntsportsfootball)
Enski boltinn Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti John Cena hættur að glíma Sport Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sádi-arabísk félög sögð vilja kaupa Mo Salah „Ekki gleyma mér“ Sjá meira