Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. september 2025 07:02 Viktor Gyökeres skoraði eitt fyrir Arsenal í gær. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Alls fóru fram átta leikir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Erkifjendurnir Arsenal og Tottenham unnu stórsigra og Brentford sótti dramatískt stig gegn Chelsea.
Dagurinn hófst á leik Arsenal og Nottingham Forest, þar sem gestirnir í Forest mættu með nýjan stjóra til leiks. Ange Postecoglou, sem þjálfaði Tottenham á síðasta tímanbili, gat þó ekkert gert gegn ógnarsterku liði Arsenal, sem vann að lokum 3-0 sigur. Marti Zubimendi skoraði tvö fyrir Skytturnar og Viktor Gyökeres eitt. Þá fór fimm leikir fram klukkan 14:00. Viðureignum Crystal Palace og Sunderland annars vegar, og Everton og Aston Villa hins vegar, lauk með markalausu jafntefli, en við fengum mörk í hinum þremur leikjunum. Bournemouth vann 2-1 sigur gegn Brighton, Newcastle vann 1-0 sigur gegn Wolves og Fulham vann vægast sagt dramatískan 1-0 sigur gegn Leeds. Klukkan 16:30 hófst svo fyrri Lundúnaslagur dagsins þegar West Ham tók á móti Tottenham. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust gestirnir yfir eftir hornspyrnu áður en liðið bætti tveimur mörkum við eftir að Tomas Soucek lét reka sig af velli með beint rautt spjald í liði heimamanna. Þá var einnig dramatík í seinni Lundúnaslag dagsins þegar Brentford tók á móti Chelsea. Moises Caicedo virtist vera búinn að tryggja Chelsea endurkomusigur með marki á 85. mínútu, en Fabio Carvalho var með aðrar hugmyndir. Öll mörk gærdagsins má sjá í spilurunum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Sjá meira