Skoðun

Sættir þú þig við þetta?

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sl. 11 ár hef ég ítrekað bent Reykjavíkurborg á að grunnskólinn væri í kaldakoli. Að skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart börnum væri svo gott sem algert með sífellt fleiri nemendur sem ekki eru með grunnfærni í lesskilningi eða um 40 prósent nemenda í dag eftir tíu ára skyldunám. Möguleikar þessara barna til lífsgæða eru verulega skertir, það er algerlega óásættanlegt.

Núna þegar búið er að verðleggja þessa stöðu af OECD og kannski hreyfir það við fólki. 5% framleiðni lækkun til lengir tíma kostar samfélagi gróft reiknað 200.000.000.000kr, tvöhundruðþúsund milljónir árlega.

Því miður hefur meira og minna allt ræst sem ég hef spáð sl. áratug þrátt fyrir að ég hafi verið sakaður ítrekað að tala niður skólakerfið, að ég væri á villigötum og að fjöldi fræðimanna, sérfræðinga og embættismanna væri ekki sammála mér.

Þetta þarf ekki að vera svona. Ef yfirvöld hefðu litið niður úr fílabeinsturni sínum og skoðað skóla sem eru þannig að ef allir skóla væru sem þeir væri framleiðni aukning upp á 5 prósent árlega með tilheyrandi verðmætasköpun og innan við 10 prósent nemenda án grunnfærni í lesskilningi.

Þessi saga námsárangurs í grunnskólanum er dæmi um það þegar fræðimenn, sérfræðingar og embættismenn hafa samofið sjálfsmynd sína stefnu og leiðum í menntamálum og eru það flæktir í eigin net að þeir geta með engu móti losað sig úr því á kostnað grunnskólabarna.

Menntayfirvöld í sinni sjálfsmyndarpólítík vita ekki hvers vegna staðan er svona og eðli málsins samkvæmt hafa ekki hugmynd um leiðina í rétta átt. Staðan er gegnsýrð af Dunning-Kruger áhrifunum þar sem vitneskjan um eigin veikleika er svo gott sem engin.

Hefur einhver þeirra sem hafa haft völd til að ákvarða og ákveða stefnu og leiðir í menntamálum gefið sig fram og axlað ábyrgð á þessari hörmungar stöðu? Svarið er NEI.

Það eru svo sannarlega til leiðir út úr vandanum en þá þurfa töluvert margar silkihúfur og smákóngar að endurvinna sjálfsmynd sína ellegar halda á brott. Það er merki um sjálfstraust að viðurkenna að það sem þú hefur staðið fyrir árum saman hafi verið rangt en það er það eina rétta í stöðunni. Gerum þetta saman nemenda og ríkissjóðs vegna.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×