Viðskipti innlent

Samkaup segja upp tuttugu og tveimur

Agnar Már Másson skrifar
Samkaup rekur me[al annars Nettó, Karmbúðina og fleiri þekkt vörumerki.
Samkaup rekur me[al annars Nettó, Karmbúðina og fleiri þekkt vörumerki.

Tutt­ugu og tveim­ur var í dag sagt upp á skrif­stofu Sam­kaupa í hagræðingarskyni. Nýlega var gengið frá kaupum Orkunnar á félaginu.

mbl.is greinir frá og hefur eftir Heiði Björk Friðjónsdóttur, framkvæmdastjóra Samkaupa, að ekki sé gert ráð fyrir frekari uppsögnum. Alls unnu 56 starfsmenn á skrifstofunni, að sögn Rúv.

Heiður tók við sem framkvæmdastjóri síðustu mánaðamót en Samkaup reka 60 verslanir. 

Heiður Björk Friðbjörnsdóttir er nýr forstjóri Samkaupa.Samkaup

Árið 2024 nam tap Samkaupa 900 milljónum króna saman borið við 267 milljóna króna hagnað árið 2023.

Hjá Samkaup starfa um 1250 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Samkaupa. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Háskólabúðin, Iceland og Samkaup strax.

Samkaup er í eigu Orkunnar, sem er dótturfélags Skeljar fjárfestingafélags en í maí runnu Heimkaup og Samkaup saman. Í maí greindi Innherji frá því  að virði Samkaupa hafi verið metið á tæplega fimmtíu prósent lægra gengi heldur en þegar ráðist var í hlutafjárhækkun fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Heiður hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×