Lífið

Quarashi á svið eftir tuttugu ára hlé

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Quarashi kemur fram í fyrsta og eina skiptið í sumar á tónlistarhátíðinni Lopapeysan á Akranesi.
Quarashi kemur fram í fyrsta og eina skiptið í sumar á tónlistarhátíðinni Lopapeysan á Akranesi. Vísir/Sveinn Speight

Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið í fyrsta sinn í tuttugu ár á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

Quarashi var stofnuð árið 1996 og naut mikilla vinsælda bæði hérlendis og erlendis. Á þeim tíma seldi hún um hálfa milljón platna og hélt hundruð tónleika um allan heim. Allir fyrrum meginliðsmenn sveitarinnar taka þátt í endurkomunni, þar á meðal Steinar Fjeldsted, Höskuldur Ólafsson, Sölvi Blöndal, Egill “Tiny” Thorarensen, Ómar “Swarez” Hauksson og DJ Gísli Galdur.

Aðrir sem koma fram á hátíðinni eru Friðrik Dór, Birnir, Auddi Blö, Steindi, Sigga Beinteins, Stebbi Hilmars, Stuðlabandið, Ingi Bauer, Páll Óskar, Margrét Rán, Emmsjé Gauti, Egill Gillz, Herra Hnetusmjör, Bríet, Todmobile og fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.