Lífið

Mos Def stað­festur og unnið að fleiri tón­leikum í stað Lóu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Mos Def eða Yasiin Bey kemur til Íslands í maí á næsta ári.
Mos Def eða Yasiin Bey kemur til Íslands í maí á næsta ári. Vísir/Getty

Enn er unnið að því að finna nýjar dagsetningar fyrir listamenn sem áttu að koma fram á tónlistarhátíðinni Lóu næstu helgi. Tilkynnt var í gær að hátíðinni hafi verið aflýst. Búið er að staðfesta að (Mos Def) eða Yasiin Bey komi fram á Íslandi þann 9. Maí á næsta ári í staðinn.

„Við erum enn að vinna að því að finna nýjar dagsetningu fyrir Mobb Deep, De La Soul,Skratch Bastid og Joy Anonymous. Það standa enn fremur enn viðræður yfir við Jamie XX. Íslensku tónlistarmennirnir sem áttu að koma fram munu hita upp á þessum viðburðum,“ segir Benedikt Freyr Jónsson einn stofnandi Lóu tónlistarhátíðar.

Hann segir þannig hátíðina fá framhaldslíf á einstaka viðburðum.

„Lóan breytist frá festivali yfir í sérstaka eventa eins og Liveproject hafa verið að sjá um einstaklega vel. Einn headliner og upphitun. Þetta var ábyrgð ákvörðun, en erfið,“ segir hann um tilkynninguna í gær.

„Það besta í stöðunni var að breyta þessu fallega concepti yfir í staka viðburði og þróa Lóu-verkefnið frekar í þá átt.“

Fram kom í fréttum í gær að hátúðinni hefði verið aflýst vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Allir miðar verði endurgreiddir og miðahafar muni fá sérstakan póst varðandi endurgreiðsluferlið. Þá kom fram í frétt að slæmt veður hafi sett strik í reikninginn og haft mikil áhrif á miðasölu.

Enn er verið að semja við Jamie XX um að halda tónleika á Íslandi í stað þeirra sem hann átti að halda um helgina á Lóu. Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu

Troy Jamerson sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Pharoahe Monch mun fylgja og koma fram með hljómsveitinni De La Soul á tónlistarhátíðinni Lóu sem fer fram í Laugardal í Reykjavík þann 21. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.