Erlent

Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Aurskriða féll í grennd við Blatten þann 18. maí og var þorpið í framhaldinu rýmt. 
Aurskriða féll í grennd við Blatten þann 18. maí og var þorpið í framhaldinu rýmt.  EPA

Þorp í svissnesku Ölpunum er nærri alfarið í rúst eftir að aurskriða féll á þorpið í gær. Eins er enn saknað. 

Þorpið Blatten var rýmt fyrr í mánuðinum vegna hættu á aurskriðum. Samkvæmt upplýsingum sem svissneski miðillinn Canal9 fékk frá almannavörnum á svæðinu eru um níutíu prósent þorpsins undir skriðunni eða í rúst.

Guardian hefur eftir yfirvöldum á svæðinu að stór klumpur hafi brotnað úr Birch-jökli og hrundið af stað aurskriðu sem hrundi bæði yfir þorpið og hluta Lonza árinnar. 

Þorpið Blatten er gjöreyðilagt. EPA

Eins er saknað eftir að skriðan hrundi og óttast er að hann liggi í valnum undir rústunum. Talsmaður almannavarna segir hættu á að það versta sé enn ekki yfirstaðið. 

Matthias Bellwald bæjarstjóri Blatten sagði á blaðamannafundi í gærkvöldi að samfélagið hyggist endurbyggja þorpið. 

Í myndbandi á samfélagsmiðlum sést augnablikið þegar skriðan hrynur niður hlíðina. Myndbandið má meðal annars sjá hér að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×