Handbolti

Bein út­sending: Hvaða liðum mætir Ís­land á HM?

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland komst á HM með tveimur öruggum sigrum í leikjunum umdeildu við Ísrael í umspilinu.
Ísland komst á HM með tveimur öruggum sigrum í leikjunum umdeildu við Ísrael í umspilinu. vísir/Hulda Margrét

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta leikur á stórmóti þriðja árið í röð þegar liðið leikur á HM í lok þessa árs. Dregið er í riðla í dag, í beinni útsendingu.

HM fer fram í Þýskalandi og Hollandi dagana 26. nóvember til 14. desember. 

Alls leika 32 lið á mótinu. Þeim hefur verið skipt í fjóra styrkleikaflokka og er Ísland í þriðja flokki. Dregið verður í átta fjögurra liða riðla og getur Ísland ekki fengið annað lið úr þriðja flokki í sinn riðil.

Beina útsendingu frá drættinum, sem hefst klukkan 16, má sjá í spilaranum hér að neðan. Þar fyrir neðan má sjá styrkleikaflokkana.

Búið er að raða liðum úr efsta styrkleikaflokki í riðlana átta og fyllt verður í þá í drættinum í dag. Einnig er ljóst að Færeyjar verða í D-riðli.

A-riðill: Danmörk

B-riðill: Ungverjaland

C-riðill: Þýskaland

D-riðill: Svartfjallaland, Færeyjar

E-riðill: Holland

F-riðill: Frakkland

G-riðill: Svíþjóð

H-riðill: Noregur

Þrjú efstu liðin úr hverjum riðli komast áfram í milliriðla og spila þá að minnsta kosti þrjá leiki til viðbótar. Neðsta lið hvers riðils fer hins vegar í Forsetabikarinn svokallaða.

Styrkleikaflokkarnir:

Flokkur 1: Frakkland, Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Svíþjóð, Holland, Þýskaland, Svartfjallaland.

Flokkur 2: Pólland, Brasilía, Serbía, Rúmenía, Sviss, Spánn, Austurríki, Angóla.

Flokkur 3: Tékkland, Japan, Senegal, Ísland, Argentína, Færeyjar, Suður Kórea, Túnis.

Flokkur 4: Egyptaland, Úrúgvæ, Kasakstan, Paragvæ, Íran, Kúba, Kína, Króatía.

Íslenska landsliðið vann Forsetabikarinn og hafnaði í 25. sæti á síðasta HM, í desember 2023, þegar liðið tók þátt í mótinu í annað sinn. Fyrsta HM Íslands var árið 2011 þegar liðið hafnaði í 12. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×