Enski boltinn

Hættur hjá BBC eftir 26 ára feril: „Ég geri mér grein fyrir upp­náminu sem ég olli“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lineker hefur áður ollið uppnámi vegna ummæla um pólitísk málefni.
Lineker hefur áður ollið uppnámi vegna ummæla um pólitísk málefni. EPA-EFE/WILL OLIVER

Sjónvarpsmaðurinn og fyrrum fótboltamaðurinn Gary Lineker lætum af störfum hjá breska ríkisútvarpinu, BBC, á sunnudag. Hann hættir í skugga ásakana um gyðingahatur.

Staðið hafði til um hríð að Lineker myndi stýra sínum síðasta þætti af Match of the Day (MOTD) á sunnudaginn kemur en í þeim þætti er hver umferð ensku úrvalsdeildarinnar gerð upp.

MOTD hefur verið á dagskrá hverja helgi í kringum deildina frá árinu 1964 en enginn hefur stýrt þættinum eins lengi og Lineker. Hann tók við stjórnartaumunum árið 1999 og er því að klára sitt 26. tímabil.

Lineker átti ekki að ljúka alfarið störfum hjá BBC eftir þátt sunnudagsins en átti að starfa áfram í kringum landsleiki Englands, og fylgja liðinu á HM 2026.

Eftir færslu Linekers á samfélagsmiðlinum X í síðustu viku þar sem hann birti mynd af rottu, mynd sem hefur verið tengt við gyðingahatur, sætti hann töluverðri gagnrýni. Lineker hafði beðist afsökunar á færslunni áður en hann birti myndbandsyfirlýsingu á Instagram-síðu sinni í dag þar sem hann tilkynnti um brottför sína alfarið frá BBC.

„Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli,“ segir Lineker meðal annars í myndbandinu sem hann birti á Instagram. Hann sagði „að hætta núna er ábyrgðarfulla leiðin að fara.“

Lineker er þó að líkindum ekki hættur fótboltaumfjöllun en hann hefur haldið uppi hlaðvarpinu The Rest is Football ásamt þeim Alan Shearer og Micah Richards síðustu misseri.

Lineker er á meðal fremri markaskorara í sögu Englands og skoraði 48 mörk í 80 landsleikjum milli 1984 og 1992. Á leikmannaferli hans spilaði hann fyrir Leicester, Everton og Tottenham á Englandi auk Barcelona á Spáni og Nagoya Grampus í Japan.

Myndbandsyfirlýsingu Linekers má sjá í færslunni að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×