Dæmdur fyrir að þvætta illa fengið fé Atli Ísleifsson skrifar 29. mars 2023 14:54 Í ákæru kom fram að fjármunirnir væru ávinningur af refsiverðum brotum sem sé talinn eiga uppruna sinn að rekja til fjársvika í gegnum internetið. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri fyrir peningaþvætti með því að tekið við og nýtt millifærslur frá erlendum fyrirtækjum, samtals um 13,5 milljónir króna, inn á eigin reikning og tekið upphæðina svo út í reiðufé og afhent óþekktum aðila.
Í ákæru kom fram að fjármunirnir væru ávinningur af refsiverðum brotum sem sé talinn eiga uppruna sinn að rekja til fjársvika í gegnum internetið. Maðurinn framdi brot sín á mánaðatímabili sumarið 2019. Héraðsdómur dæmdi manninn í átta mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla, haldi maðurinn almennt skilorð í tvö ár. Manninum var jafnframt gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda, samtals um 330 þúsund krónur, og þá sætti hann upptöku á um 50 þúsund krónum. Um var að ræða tvær millifærslur frá erlendum fyrirtækjum, 5,6 milljónir frá fyrirtæki skráðu í Danmörku og svo 7,8 milljónir króna frá fyrirtæki sem skráð var í Rússlandi. Maðurinn tók svo fjárhæðirnar út í seðlum í fjórum úttektum, í þremur tilvikum í Kópavogi og einu í Reykjavík, og afhenti svo óþekktum aðila. Maðurinn játaði skýlaust brot sín og var hæfileg refsing metin átta mánaða fangelsi.
Dómsmál Efnahagsbrot Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Fleiri fréttir Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Sjá meira