Tvær stoðsendingar Guðnýjar þegar Milan missti niður forystu í lokin Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2023 16:30 Guðný Árnadóttir var dugleg að mata liðsfélaga sína í dag. Vísir/Getty Guðný Árnadóttir gaf tvær stoðsendingar þegar AC Milan gerði 3-3 jafntefli við Fiorentina í ítölsku deildinni í knattspyrnu í dag. Alexandra Jóhannsdóttir var í liði gestanna.
Lið AC Milan og Fiorentina eru bæði í keppni efstu fimm liða deildarinnar en Roma og Juventus hafa skilið sig frá hinum liðunum þremur og aðeins munaði einu stigi á Inter annars vegar og AC Milan og Fiorentina hins vegar fyrir leik dagsins. Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir voru báðar í byrjunarliðum sinna liða í dag og það voru heimakonur í AC Milan sem byrjuðu betur og komust í 2-0 í fyrri hálfleik. Valery Vigilucci kom liðinu í 1-0 strax á þriðju mínútu eftir stoðsendingu Guðnýjar og Kosovare Asllani tvöfaldaði forystuna á 21. mínútu og aftur var það Guðný sem átti stoðsendinguna. Síðustu tuttugu mínútur leiksins voru svo heldur betur fjörugar. Veronica Boquete minnkaði muninn fyrir Fiorentina á 69. mínútu en Martina Piemonte kom AC Milan í 3-1 á 74. mínútu og brekkan orðin brött fyrir gestina. Pauline Hammarlund minnkaði hins vegar muninn tveimur mínútum fyrir leikslok og á fimmtu mínútu uppbótartíma jafnaði Boquete fyrir Fiorentina. Ótrúlegar lokamínútur. Guðný Árnadóttir fór af velli í hálfleik í dag en Alexandra Jóhannsdóttir lék allan leikinn fyrir Fiorentina og nældi sér í gult spjald. Lokatölur 3-3 og liðin jafna því Inter að stigum í töflunni, öll eru þau með 35 stig í 3.- 5. sæti. Roma er efst með 51 stig og Juventus í öðru sæti með 46 stig en Roma og Inter hafa leikið einum leik minna en hin þrjú.
Ítalski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Fleiri fréttir Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Sjá meira