Förðunarráð frá Söru Dögg fyrir hátíðirnar Danól 20. desember 2022 15:11 Jólalínan frá Andrea By Andrea er glæsileg í ár. Sara Dögg Johansen sá um förðun, Alexandra Johansen sá um hár og Brynja Bjarnadóttir sat fyrir. Aldís Pálsdóttir Sara Dögg Johansen, förðunarfræðingur og stafrænn markaðsfulltrúi snyrti- og sérvöru hjá Danól sá um hátíðaförðun fyrir jólalínu Andrea By Andrea. Við fengum Söru til að gefa góð ráð og sýna okkur vörurnar sem notaðar voru við förðunina. „
Ég elska desember þegar kemur að förðun en þá er svo gaman að leika sér með glimmer, rauða varaliti og fleiri hátíðlegar vörur." segir Sara Dögg Johansen förðunarfræðingur og stafrænn markaðsfulltrúi snyrti- og sérvöru hjá Danól.Aldís Pálsdóttir Myndirnar tók Aldís Pálsdóttir, Alexandra Johansen sá um hár og módel er Brynja Bjarnadóttir. Allur fatnaður er frá Andrea By Andrea. Aldís Pálsdóttir 1. Mælir með tvöfaldri húðhreinsun Áður en þú byrjar að farða þig er mikilvægt að vera með hreina húð. Ég mæli alltaf með tvöfaldri húðhreinsun, setja svo toner/andlitsvatn, augnkrem, rakaserum og svo rakakrem. Rakakremið er líka einstaklega mikilvægt í rútínunni þegar kuldinn er mikill. Með því að undirbúa húðina vel fyrir förðun þá verður húðin heilbrigðari, áferðin á farðanum verður fallegri og förðunin endist einnig mun lengur. Fyrir þá sem hafa auka tíma þá set ég alltaf á mig góðan rakamaska kvöldinu áður en ég farða mig til þess að fá auka ljóma, raka og boost í húðina. Aldís Pálsdóttir 2. Rauður einkennir jólin Ég elska desember þegar kemur að förðun en þá er svo gaman að leika sér með glimmer, rauða varaliti og fleiri hátíðlegar vörur. Ég myndi segja að jólin í ár eins og oft áður einkennast af rauða litnum. Það eru til ótrúlega margir mismunandi rauðir tónar þannig að allir ættu að geta fundið það sem hentar þeim. Rauðir varalitir finnst mér alltaf ótrúlega klassískir og fallegir í kringum jólin og að toppa þá með rauðu naglalakki setur punktinn yfir i-ið. Varðandi húðina þá finnst mér ljómandi húð með fallegum mildum skyggingum og kinnalit alltaf fallegt á móti rauðum vörum. Mér finnst einnig fallegt að hafa augun með léttri skyggingu, kremuðum ljómandi augnskugga (glimmer á áramótunum) og toppa svo með eyeliner og augnhárum fyrir þá sem vilja smá extra. Aldís Pálsdóttir 3. Primer og settingsprey lykilatriði Til þess að förðunin endist sem lengst mæli ég með góðum primer en hann fyllir upp í fínar línur og svitaholur þannig að húðin virðist sléttari en einnig gefur hann mun betri ending á förðuninni. Ég mæli einnig með Setting Sprey en það er einskonar rakasprey sem þú úðar yfir andlitið þegar þú ert búin að farða þig og förðunin endist þá lengur. Ég myndi segja að góður primer og gott setting sprey sé lykilatriði til þess að förðunin endist frá morgni til kvölds án þess að þú þurfir að laga þig. Aldís Pálsdóttir Fyrir þá sem ætla að nota rauða eða dökka varaliti þá mæli ég með að finna varablýant í svipuðum lit og setja yfir allt varasvæðið, þá verður blýanturinn eins og primer og varaliturinn endist mun lengur. Þeir sem vilja nota glimmer þá er til ótrúlega sniðug vara sem heitir Glitter Primer og er frá Nyx Professional Makeup en sú vara er fullkomin til að festa glimmer og kemur í veg fyrir að það fari út um allt. Hér má sjá vörurnar sem notaðar voru við förðunina:
Förðun Tíska og hönnun Mest lesið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Sjá meira