Jane Foster mætt með hamar Þórs Samúel Karl Ólason skrifar 19. apríl 2022 10:59 Natalie Portman sem nýr Þór. Marvel birti í gær fyrstu stikluna fyrir nýjustu myndina um ofurhetjuna Þór og ævintýri hans. Myndin heitir Thor: Love and Thunder en miðað við stikluna virðist Thor þurfa að finna sig á nýjan leik.
Með honum í stiklunni eru Peter Quill og félagar í Guardians of the Galaxy. Það má ýmislegt sjá bregða fyrir í stiklunni en þetta er fjórða myndin um Þór og önnur mynd leikstjórans Taika Waititi. Það atriði stiklunnar sem hefur þó vakið mesta athygli er í enda hennar og sýnir Natalie Portman í hlutverki Jane Foster með hamar Þórs og hæfileika hans. Jane Foster er fyrrverandi kærasta Þórs úr fyrri myndunum um ofurhetjuna. Christian Bale er einnig í myndinni og leikur hann Gorr the God Butcher. Sá er persóna sem þekkt er úr teiknimyndasögunum um Thor og er aðili sem einsetur sér að fara um heiminn og drepa guði, eins og nafn hans gefur glögglega til kynna. Það kemur eflaust niður á tilraunum Þórs til að finna sjálfan sig. Nýja Ásgarð bregður fyrir í stiklunni en Valkyrie, sem leikin er af Tessu Thompson, stjórnar þar enn. Í stiklunni má einnig sjá gríska guðinn Seif bregða fyrir en hann er leikinn af Russel Crowe. Einhverjir spyrja sig ef til vill hvernig Foster er komin með hamar Þórs. Í þriðju myndinni um Þór eyðilagði Hela hamarinn. Í Avengers: Endgame sótti Þór hamarinn í fortíðina, þegar hann og Rocket fóru til að stinga Jane Foster með sprautu og sækja The Aether. Í lok myndarinnar fór Captain America aftur í fortíðina til að skila Infinity steinunum og væntanlega fór hann til Ásgarðs til að sprauta Foster aftur með The Aether, einhvern veginn. Þá var hann með hamarinn með sér og skilaði honum. Því má gera ráð fyrir því að Þór hafi aftur fengið hamarinn í þeirri tímalínu og Hela hafi aftur eyðilagt hann. Áður en Thor: Love and Thunder verður sýnd, verður myndin Dr. Strange in the Multiverse of Madness sýnd en hún gæti haft veruleg áhrif á söguheim Marvel. Þessi Jane Foster sem er með hamarinn, gæti tæknilega séð verið úr öðrum alheimi. Það er þó líklegra að einhver hafi smíðað Mjölnir á nýjan leik, eftir Thor. Ragnarok. Thor: Love and Thunder verður sýnd í júlí.
Bíó og sjónvarp Disney Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Fleiri fréttir Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira