Arnór Gunnarsson ráðinn forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS Hörður Ægisson skrifar 16. október 2017 13:23 Arnór Gunnarsson var áður forstöðumaður hlutabréfa hjá Öldu sjóðum.
Arnór Gunnarsson, sem hefur verið forstöðumaður hlutabréfa hjá Öldu sjóðum frá árinu 2013, hefur verið ráðinn forstöðumaður fjárfestinga hjá tryggingafélaginu VÍS. Í tilkynningu frá VÍS segir að ráðning hans sé hluti af þeim skipulagsbreytingum sem tilkynnt var um í síðasta mánuði og hafa það að markmiði að efla þjónustu við viðskiptavini og styðja við enn frekari vöxt félagsins. Arnór, sem mun hefja störf hjá VÍS þann 1. desember næstkomandi, tekur við starfinu af Tryggva Guðbrandssyni sem var á meðal þeirra stjórnenda sem létu af störfum samhliða þeim skipulagsbreytingum sem ráðist var í hjá tryggingafélaginu. Með þeim var skipurit VÍS einfaldað til muna þar sem framkvæmdastjórum var fækkað úr sex í fjóra og þá var stjórnendum fækkað úr 33 í 26. Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, segir í tilkynningu að „við hjá VÍS erum gríðarlega ánægð að hafa fengið Arnór til liðs við okkur og ég er þess fullviss að reynsla hans og hæfileikar munu reynast okkur vel í þeim verkefnum sem fram undan eru.“ Arnór er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi sem Chartered Financial Analyst auk þess að vera löggiltur verðbréfamiðari. Áður en hann var hjá Öldu sjóðum starfaði Arnór sem forstöðumaður hlutabréfateymis Stefnis á árunum 2007 til 2013. Þá hefur hann einnig meðal annars verið forstöðumaður sjóðastýringar Rekstrarfélags Kaupþings og sjóðsstjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Ráðningar Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Sjá meira