West Ham slapp áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2015 22:10 Tomkins skoraði í fyrri leiknum og var rekinn út af í þeim seinni. vísir/afp
West Ham rétt slapp áfram í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir sigur í vítaspyrnukeppni á maltneska liðinu Birkirkara. Hamrarnir unnu fyrri leikinn á Upton Park, 1-0, með marki James Tomkins. Hann kom einnig við sögu í leiknum í kvöld en hann var rekinn af velli með rautt spjald á lokamínútu fyrri hálfleiks. Þá var staðan 1-0, Birkirkara í vil. Markið skoraði Fabrizio Miccoli, fyrrverandi leikmaður Juventus, Palermo og fleiri liða. Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar. Hvorugu liðinu tókst að skora þar en Mauricio Mazzetti, leikmanni Birkirkara, tókst að næla sér í sitt annað gula spjald og þar með rautt. Í vítaspyrnukeppninni reyndust leikmenn West Ham sterkari á svellinu. Þeir skoruðu úr öllum fimm spyrnum sínum en Nikola Vukanac, leikmanni maltneska liðsins, brást bogalistin og West Ham fagnaði því 5-3 sigri og sæti í 3. umferðinni. Þar mæta lærisveinar Slavens Bilic Astra Giurgiu frá Rúmeníu.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Átti Henderson að fá rautt spjald? Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Sjá meira