Hærra heildsöluverð í Bandaríkjunum 16. maí 2006 13:41 Bifreiðaeigendur í Bandaríkjunum leita eftir því að fá eldsneyti á ökutæki sín á lágu verði. Mynd/AFP
Heildsöluverð hækkaði um 0,9 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta er mesta hækkun síðastliðna sjö mánuði vestra en helsta ástæða hækkunarinnar er hærra eldsneytisverð og verð á öðrum orkugjöfum. Hækkunin nam 0,5 prósentum í mars. Verðhækkanirnar eru sagðar endurspegla hækkanir á eldsneyti og orkugjöfum en hækkun þeirra nam 4 prósentum í síðasta mánuði og hefur ekki verið hærri síðan í október í fyrra. Að hækkunum á orku- og matvælaverði undanskildum þá hækkaði neysluverðsvísitalan um 0,1 prósent í Bandaríkjunum. Þykir það vera merki um að hækkanir á orkuverði og eldsneyti hefur ekki haft jafn mikil áhrif á aðra vöruflokka líkt og áður var óttast. Hagfræðingar hafa ekki komið sér saman um hugsanlega niðurstöðu af næsta fundi bankastjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna en nokkrir þeirra búast við hækkun stýrivaxta. Aðrir telja hins vegar að frekari hækkun vaxtanna verði látin vera í bili. Olíuverð fór í hæstu hæðir í apríl eða 75,17 dali á tunnu. Verðið hefur lækkað nokkuð frá síðasta mánuði og er verðið nú komið niður fyrir 70 dollara.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Verslunarrisar mættir til leiks Viðskipti innlent Vill að Alþingi skipi rannsóknarnefnd vegna forsætisráðherra Viðskipti innlent Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Viðskipti innlent 60 kílómetrar af Glamour komið í verslanir Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO Samstarf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira