Innlent

Ráð­herra vill tryggja betra eftir­lit með Sjúkra­tryggingum Ís­lands

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að tryggja eftirlit með Sjúkratryggingum.
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að tryggja eftirlit með Sjúkratryggingum. Vísir/Vilhelm

Heilbrigðisráðherra hyggst fá utanaðkomandi ráðgjafa til að kanna hvernig ráðuneytið geti haft betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands. Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við samninga stofnunarinnar við sérgreinalækna.

Ríkisendurskoðun gerir fjölmargar og alvarlegar athugasemdir við samningsferli Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna í nýrri stjórnsýsluútttekt þar sem segir að samningarnir geti falið í sér hvata til að veita þjónustu óháð raunverulegri þörf.

Skrifað var undir samningana fyrir tveimur árum en Ríkisendurskoðun segir að engar kostnaðar- og þarfagreiningar hafi verið gerðar og ekki er nægjanlegt eftirlit með innheimtu. Heilbrigðisráðherra segir að frá því lög hafi verið sett um sjúkratryggingar árið 2007 hafi stofnuninni aldrei verið gert kleift að sinna hlutverki sínu sem skyldi.

„Það skortir afl er varðar þarfa- og kostnaðargreiningar, er varðar samningagerð og eftirlit. Þannig það er mjög mikilvægt að bæta úr. Þessir samningar sem hafa verið gerðir, við sérgreinalækna, kemur til greina að endurskoða þá? Það er auðvitað samstarfsnefnd þar sem hefur ýmis tækifæri, auðvitað þarf að nýta það en fyrst og síðast þarf að horfa til þeirra samninga sem á eftir koma.“

Þegar hafi verið veittar sextíu milljónir í að styrkja stofnunina, meira þurfi þó til, efla þurfi tækjakost og endurskoða lög um sjúkratryggingar og heimildir stofnunarinnar til að afla gagna.„Síðan þurfum við að skoða hvernig ráðuneytið getur haft betra eftirlit með stofnuninni og svona ýmsa aðra þætti sem ég mun fá utanaðkomandi ráðgjafa til að ráða mér heilt um.“


Tengdar fréttir

Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs

Stórbæta þarf samningsgerð og eftirlit Sjúkratrygginga vegna kaupa á heilbrigðisþjónustu samkvæmt nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar. Bent er á að kostnaður stofnunarinnar jókst um ríflega þriðjung milli ára eftir nýjan samning við sérgreinalækna. Ríkisendurskoðandi segir þetta hafa neikvæð áhrif á fjárhag ríkissjóðs og samfélagið í heild.

Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar

Sjúkratryggingar fagna ábendingum Ríkisendurskoðunar og segjast í meginatriðum vera sammála áherslum og ábendingum sem fram koma í nýrri stjórnsýsluúttekt þar sem gerðar eru athugasemdir við samningsferli Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna og fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×