Veður

Allt að sau­tján stiga hiti í dag

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Börn landsins (og fullorðnir) geta vafalaust hoppað á ærslabelgjum í góða veðrinu í dag.
Börn landsins (og fullorðnir) geta vafalaust hoppað á ærslabelgjum í góða veðrinu í dag. Vísir/Anton Brink

Víðáttumikil lægð milli Íslands og Færeyja stjórnar veðrinu á Íslandi í dag með norðlægri eða breytilegri átt. Á Norður- og Austurlandi verður svalt en í öðrum landshlutum verður skýjað með köflum, sums staðar dálítil væta og hiti allt að 17 stig.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar um veðurhorfur á landinu í dag.

Á Norður- og Austurlandi má búast við rigningu eða þokusúld og hita á bilinu sex til tólf stig. Annars staðar verður skýjað með köflum og hitinn á bilinu tíu til sautján stig. Von er á síðdegisskúrum á Suðurlandi.

„Í kvöld og nótt fjarlægist lægðin. Á morgun er því útlit fyrir fremur hægan vind á landinu, skýjað víðast hvar og lítilsháttar væta, en skúrir sunnanlands. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina upp í 14 stig sunnantil,“ segir í hugleiðingum veðufræðings um morgundaginn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag: Norðan 3-8 m/s á norðurhelmingi landsins og lítilsháttar rigning eða súld. Hiti 6 til 10 stig. Hæg breytileg átt sunnanlands með rigningu eða skúrum og hita 8 til 14 stig.

Á þriðjudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta, en síðdegisskúrir sunnanlands. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8. Bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis í flestum landshlutum. Hiti 8 til 14 stig.

Á fimmtudag: Suðvestan 3-8 og dálítil rigning eða súld, en bjart að mestu norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á föstudag: Suðlæg átt og fer að rigna á Suður- og Vesturlandi, en bjartviðri og fremur hlýtt fyrir norðan og austan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×