Innlent

Trump segir vopna­hlé hafa tekið gildi en Ísraelar þögulir

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Íranir segjast hafa skotið sínum síðustu sprengjum fyrir vopnahlé í nótt á borgina Bersheeba þar sem nokkrir íbúar fjölbýlishús létu lífið og húsið gjöreyðilagðist. 
Íranir segjast hafa skotið sínum síðustu sprengjum fyrir vopnahlé í nótt á borgina Bersheeba þar sem nokkrir íbúar fjölbýlishús létu lífið og húsið gjöreyðilagðist.  AP Photo/Leo Correa

Enn er óljóst hvort vopnahlé sem Donald Trump tilkynnti um á milli Ísraela og Írana ætli að halda, en eldflaugum var í nótt skotið á borgina Bersheeba í Ísrael þar sem fjórir létu lífið í íbúðablokk sem varð fyrir sprengjum.

Íranskir miðlar segja að þar hafi verið á ferðinni síðasta árásin áður en vopnahlé tæki gildi og þá hafa fregnir borist af því að Ísraelar hafi einnig nýtt sér nóttina til að gera enn frekari árásir á Teheran höfuðborg Írans. Íranir hafa sagst ætla að virða vopnahléið, ef Ísraelar gera slíkt hið sama, en enn hefur ekkert heyrst frá ráðamönnum Ísraela með formlegum hætti.

Trump tilkynnti um vopnahléið óvænt í gærkvöldi á samfélagsmiðli sínum þar sem hann sagði að tólf daga stríðinu eins og hann kallaði átök síðustu daga væri nú lokið. Fregnir hafa einnig borist af því að ráðamenn í Qatar hafi komið að samkomulaginu með einhverjum hætti.

Trump fullyrðir að báðir aðilar hafi samþykkt að hætta átökunum en eins og áður sagði hefur ekkert heyrst enn frá Ísrael.


Tengdar fréttir

Segir vopnahlé í höfn

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Ísrael og Íran hafi náð samkomulagi um vopnahlé. Hann segir að ef fram fer sem horfir muni vopnahléð binda endi á stríðið sem geisað hefur síðustu tólf daga.

Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér

Íranar létu yfirvöld í Bandaríkjunum og Katar vita af sér áður en þeir létu til skarar skríða og skutu eldflaugum í átt að bandarísksri herstöð í Katar í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkar þeim fyrir og segir að engan hafi sakað í árásinni.

Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar

Íranski byltingarvörðurinn skaut fjölda eldflauga í átt að bandarískri herstöð í Katar síðdegis í dag. Sprengingar ómuðu um Dóha, höfuðborg Katar, meðan árásirnar stóðu yfir. Katarska utanríkisráðuneytið segir loftvarnir landsins hafa skotið írönsku eldflaugarnar niður áður en þær gátu valdið tjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×