Leik lokið: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu

Pálmi Þórsson skrifar
Stjörnumenn gerðu góða ferð upp á Skaga og unnu botnliðið örugglega.
Stjörnumenn gerðu góða ferð upp á Skaga og unnu botnliðið örugglega. Vísir/Diego

Vandræði Skagamanna halda áfram en þeir steinlágu 3-0 á heimavelli á móti Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Benedikt V. Warén og Andri Rúnar Bjarnason skoruðu báðir en eitt markanna var sjálfsmark.

Þetta var fyrsti leikur Skagaliðsins eftir að Jón Þór Hauksson var látinn fara en Lárus Orri Sigurðsson tekur við liðinu eftir þennan leik.

Stjörnumenn hafa þar með náð í tíu stig í síðustu fjórum leikjum og eru komnir upp fyrir Vestramenn eftir þennan sigur.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira