Innlent

Flug­vél á leið til Ís­lands lent í Manchester

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Engir farþegar voru um borð.
Engir farþegar voru um borð. Vísir/Vilhelm

Flugvél Icelandair í ferjuflugi sem var á leið frá Chales de Gaulle flugvellinum í París var lent í Manchester síðdegis í dag vegna tæknilegs atriðis sem kom upp. 

Guðni Sigurðsson staðgengill forstöðumanns samskipta hjá Icelandair staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en áréttir að þar sem um ferjuflug var að ræða hafi engir farþegar verið um borð. 

Samkvæmt verklagi hafi verið ákveðið að lenda flugvélinni, sem er af gerð Boeing 767,  í Manchester. Guðni segir að tæknileg atriði eins og það sem kom upp í dag hæglega geta gerst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×